Dagbók Dána
þriðjudagur, febrúar 08, 2005
  Sólarkaffi
Veðrið er fagurt og fínt. Við fórum um þrjúleytið í leikfimi út í íþróttahús. Ég var í vafa um hvort það væri hyggilegt eftir hefðbundna sprengidagsmáltíð að sprikla mikið en lét mig hafa það og varð enginn alvarlegur skandali. Komum svo ekki úr bænum fyrr en klukkan að ganga sex og allur kaffitími úti og ekkert sólarkaffi á boðstólum. Sólarkaffi skal ég þó fá þótt seinna verði. Það er varasamt að brjóta gamlar og góðar hefðir, sérstaklega ef þær eru bragðgóðar. Á morgun ætlum við að fara í "opið hús" og skemmta okkur. Ég var að horfa á loðnuskipin, sem voru að vinna loðnu út á firði. Í kringum íslensku skipin var mikill fuglasveimur og veisla fyrir fiðurdýrin. En hjá norsku skipunum sást ekki einn einasti fugl. Norðmenn láta ekkert af úrgangi fara í sjóinn eins og okkar menn gera. Þeir gjörnýta hvern sporð og hrogn. Þar gætum við lært af þeim.

Blessuð og sæl.
 

mánudagur, febrúar 07, 2005
  Sólin
Síðasti snjór er nú allur horfinn eftir veðurofsann sl. nótt. Rigning og ofsarok sá um það, eins og svo oft áður. Gleðilegt við daginn var það að blessuð sólin gægðist upp fyrir Hnúkana en náði þó ekki að fleyta fjallið alveg, en það gerir hún á morgun. Þá er lokið nær 100 daga sólarleysi á þessum stað. Því miður var ekki talið hollt að hafa sólarkaffi í dag með öllu bolluátinu. Spurningin er hvort hægt verður að særa það fram á morgun þegar sólin losnar alveg frá fjallinu. Ég þurfti að fara á bílaverkstæði í dag og spallaði við eigandann m.a. um sólina. Hún sést ekki hjá mér fyrr en 1. mars, sagði hann með trega í röddinni. Það er ekki tekið út með sældinni að eiga heima í Skuggahlíð hvað sólina varðar.
Húrra!
 

laugardagur, febrúar 05, 2005
  Snjór
Aftur kominn snjór, eins og sumir segja. Var búinn að ætla mér að fara í göngu á auðri jörð og ganga út í Fólksvang þeirra á Nesi út. Í staðinn keyrði ég í snjóblindu í bæinn og þóttist góður að komast klakklaust til baka. Sótti síðar um daginn frænku Beggu, og dvaldi hún hjá okkur langt fram á kvöld, en þá var komið besta veður, er ég skutlaði henni í bæinn aftur. Fleira ekki á dagskrá, enda komið fram yfir miðnætti.
Góða nótt.
 

fimmtudagur, febrúar 03, 2005
 
Það er frekar fátt að segja þennan daginn. Veðrið mjög gott og var ég mikið úti í dag. Gekk mest á auðri jörð eða á hörðum snjó. Hægt var að setjast niður eins og að sumarlagi og hugsa um tilveruna og tilganginn með lífinu. Enginn niðurstaða þennan daginn. Fjörðurinn er hálffullur af skipum sem eru að frysta loðnu. Er bæði um íslensk og norsk skip og kannski færeysk að ræða. ljósadýrðin er mikil þar á kvöldin. Ný færanleg borg.

Bless.
 

þriðjudagur, febrúar 01, 2005
 
Þorrahlákan er ennþá í fullu fjöri og eru mestu svellalögin að láta undan, jörð er öll hvítflekkótt dökku flekkirnir eru stærri. Mikil himinfegurð hefur verið í suðvestan áttinni silfruð ský, og ský í öllum regnbogans litum. Ég var að reyna að mynda þessa fegurð dag eftir dag. Einhverjar myndir tókust sæmilega. Oft hefur verið hvasst þessa dagana og líka logn og blíða. Hitastigið verið með ólíkindum, allt upp í 15 stig. Austurland titraði dálítið í jarðskjálfta í gærkvöldi. Um sama leyti hækkaði hitinn úr 0 gráðu í 12 gráður.
Fremur fátt hefur verið að gerast hér að öðru leyti í lífi okkar þessa daga sem liðnir eru af nýju ári. Reynt er að gera eitthvað til gagns og eitthvað til afþreyingar. Lesa, skrifa, hlusta á útvarp og sjá á sjónvarp. Fara út og reyna að ganga á svellunum á mannbroddum. Taka í spil og vera með í félagsskap vina, félaga og vandamanna. Við fórum á tvö þorrablót í þorrakomu. Tvö kvöld í röð. Þar með skammturinn búinn. Það er best að taka óhófið í mat og drykk í skorpum og löngum hléum á milli. Það fer hér allt saman í næstu viku, sólarkaffi, bollu- og sprengidagur.

Ég var að hlusta á útvarpið og hlýddi á hámenntaða vísindakonu tala og talaði hún t.d. um vatn og nefndi þá "heilbrigt vatn" í orðræðunni. Hugsið ykkur að drekka flensuveikt vatn!!

Góða nótt.
 

mánudagur, desember 27, 2004
 
Gleðileg jól og kærar þakkir fyrir góðar jólakveðjur. Jólin venjuleg nema veðrið öllu verra en oftast áður á jólum síðustu ára. Í dag fagurt og gott veður. Snjórinn að mestu horfinn á haf út eftir norðan blásturinn. Stórfjölskyldan mætti hér á jóladag. Þó vantaði nokkra vegna fjarlægðar og veikinda eins og gengur.Hefi verið að glugga í bækur sem ég fékk, t.d. Íslendingar og Íslandsskóga svo og Nýjar vestfirskar þjóðsögur 7. hefti. Svo hefur maður hlustað á útvarp og glápt á sjónvarp. Heilsan svona sæmileg en mætti þó vera betri. Hefi farið varlega í krásir jólanna, borðaði í hádeginu ýsubollur. Í næsta mánuði mæti ég svo galvaskur í spottaverkið í Rvíkinni.

Ljúkið árinu skynsamlega. Bestu kveðjur. H.H.
 

föstudagur, desember 17, 2004
 
Í dag hefur verið bjart og kalt veður og nokkuð mikið frost . Í gær var líka hægviðri en snjókoma og nú er hvít mjallarbreiða yfir öllu utan dyra. Síðustu dagar hafa farið í ýmis störf eða dútl varðandi jól. Búa til jólakort og skrifa á þau og koma í póst, fara í búðir og huga að jólagjöfum, Nokkur tími hefur farið í bókalestur og bókagrúsk. Fréttin um gamla skákmeistarann og landvistarleyfi hans hér, hugnast mér vel. Þó hann sé orðljótur og sérvitur, þá munar ekki um einn af því tagi. Kannski hann komist á þing seinna meir?

Í síðasta pistli mínum minntist ég á málshátt þar sem kemur fram fornt heiti á skíðum Sama eða Finna eins og þeir heita í gömlu sögunum okkar. Skíðin þeirra voru frumstæð miðað við skíði nútímans.
Í fyrradag var ég um tíma út við árós í stilltu en köldu veðri og horfði á fuglana sem þar voru. Mest bar á máfum og hröfnum. Einstaka sendlingur hljóp eftir fjöruborðinu og æðarfuglinn og hávellurnar lónuðu meðfram landinu. Flestir fuglar eru þögulir á þessum árstíma og hreifa sig sem minnst nema við fæðuöflun. Það gera þeir til þess að spara orkuna í kuldanum.

Músagangur hefur aukist þessa síðustu svölu daga og getur verið vandræðalegt að fá þær inn í hús. Fyrir svona 10 árum fylltist kjallarinn hjá mér af músum. Setti þá upp stóra plastfötu með viðeigandi útbúnaði. Morguninn eftir voru margar mýs í fötunni. Ekki fékk ég mig til þess að stúta þeim, heldur fór með fötuna miðja leið til næsta bæjar og hellti þar úr fötunni. Þær gátu þá valið á hvorn bæinn þær færu. Mælti ég auðvitað með nágrannabænum við mýslurnar, Hvað þær gerðu veit ég ekki.
 

Hálfdan hugsar

Dætur
Tóta litla ...
Unnur

Barnabörn
Stella Ingigerður
Ingvar Skúlason

Aðrir bloggarar
Anna tvíburamamma
Harpa í sveitinni

ARCHIVES
10/2003 /
11/2003 /
12/2003 /
01/2004 /
02/2004 /
03/2004 /
04/2004 /
05/2004 /
06/2004 /
11/2004 /
12/2004 /
02/2005 /


Powered by Blogger